Úr aðalnámskrá tónlistarskóla:

Nemendur

læri og æfist í að setja fram eigin tónhugmyndir, bæði skriflega og leiknar af fingrum fram
læri og þjálfist í að setja saman hefðbundnar eða óhefðbundnar tónsmíðar
FORSÍÐA
SKÓLINN
SKÓLADAGATAL
NÁMIÐ
Hljómsveitir
Samleikur
Tónleikar
Námsmat
Skólareglur
Til foreldra
Samstarfsaðilar
TÓNVER
SKÓLAGJÖLD
KENNARAR
MYNDASAFN
TENGLAR

 

Básúna

Í aðalnámskrá tónlistarskóla er gerð grein fyrir þeim markmiðum sem nemendur eiga að hafa náð við lok grunnáms, miðnáms og framhaldsnáms á básúnu. 

Markmið í grunnnámi

Við lok grunnnáms eiga básúnunemendur að hafa náð eftirfarandi markmiðum:

Nemandi

  • beiti líkamanum á eðlilegan hátt þegar leikið er á hljóðfærið
  • haldi rétt á hljóðfærinu
  • hafi náð tökum á nákvæmri og markvissri notkun sleðans
  • hafi náð tökum á eðlilegri og djúpri öndun
  • hafi náð góðri og eðlilegri munnsetningu
  • hafi náð góðum grundvallartökum á tónmyndun á öllu tónsviðinu frá F til f'
  • hafi náð allgóðum tökum á inntónun
  • geti gert styrkleikabreytingar vel heyranlegar
  • ráði yfir eðlilegri tungutækni miðað við þetta námsstig
  • geti leikið bundið og með tungu
  • hafi hlotið nokkra þjálfun í að beita a.m.k. tveimur aukalegum, t. d. f á 6. legu og d' á 4. legu

Nemandi

  • hafi öðlast allgott hrynskyn
  • geti lesið og leikið án undirbúnings verkefni sambærileg þeim sem fengist var við í fyrri hluta grunnnáms
  • hafi þjálfast reglulega í að leika utanbókar
  • hafi þjálfast reglulega í að leika eftir eyra
  • hafi fengist við skapandi starf frá upphafi námsins
  • hafi þjálfast í ýmiss konar samleik, bæði í stærri og minni hópum
  • hafi farið yfir viðunandi fjölda verkefna
  • hafi fengist við fjölbreytt úrval verkefna
  • hafi þjálfast reglulega í leik tónstiga og hljóma samkvæmt þessari námskrá
  • hafi undirbúið prófverkefni til flutnings á grunnprófi samkvæmt þessari námskrá

Nemandi sýni eftirfarandi atriði í þeim mæli sem eðlilegt getur talist eftir um það bil þriggja ára nám:

  • tilfinningu fyrir túlkun og hendingamótun
  • blæbrigði og andstæður
  • þekkingu og skilning á stíl
  • tilfinningu fyrir samleik
  • öruggan og sannfærandi leik
  • persónulega tjáningu
  • viðeigandi framkomu

Markmið í miðnámi

Við lok miðnáms eiga básúnunemendur að hafa náð eftirfarandi markmiðum:

Nemandi

  • beiti líkamanum á eðlilegan hátt þegar leikið er á hljóðfærið
  • beiti öruggum og markvissum sleðahreyfingum
  • hafi náð tökum á eðlilegri og djúpri öndun
  • hafi náð eðlilegri og vel þjálfaðri munnsetningu
  • hafi náð góðum tökum á tónmyndun á öllu tónsviðinu frá E til as'
  • hafi hlotið þjálfun sem miði að góðu úthaldi
  • hafi náð góðum tökum á inntónun
  • geti stillt hljóðfærið við annað hljóðfæri
  • hafi náð allgóðum tökum á vibrato og noti það smekklega
  • ráði yfir töluverðu styrkleikasviði og geti gert andstæður augljósar
  • ráði yfir góðri tungutækni bæði hvað varðar hraða og fjölbreytni í túlkun
  • geti spilað legato
  • ráði vel við að leika bundið á sömu legu, þ.e. náttúrutónabindingar
  • hafi aukalegur á valdi sínu, a.m.k. f á 6. legu, d' á 4. legu, b á 5. legu og f' á 4. legu
  • hafi náð góðum tökum á notkun F-ventils

Nemandi

  • hafi öðlast gott hrynskyn
  • geti lesið og leikið án undirbúnings verkefni sambærileg þeim sem fengist var við í fyrri hluta miðnáms
  • hafi hlotið nokkra þjálfun í lestri tenórlykils
  • hafi þjálfast reglulega í að leika utanbókar
  • hafi þjálfast í ýmiss konar samleik, bæði í stærri og minni hópum
  • hafi farið yfir viðunandi fjölda verkefna
  • hafi fengist við fjölbreytt úrval verkefna
  • hafi þjálfast reglulega í leik tónstiga og hljóma samkvæmt þessari námskrá
  • hafi undirbúið prófverkefni til flutnings á miðprófi samkvæmt þessari námskrá

Nemanda hafi gefist kostur á að velja hvort og að hversu miklu leyti hann sinnir eftirfarandi atriðum:

  • leik eftir eyra
  • tónsköpun
  • spuna

Nemandi sýni eftirfarandi atriði í þeim mæli sem eðlilegt getur talist eftir um það bil sjö til átta ára nám:

  • tilfinningu fyrir túlkun og hendingamótun
  • ýmis blæbrigði og andstæður
  • þekkingu og skilning á stíl
  • tilfinningu fyrir samleik
  • öruggan og sannfærandi leik
  • persónulega tjáningu
  • viðeigandi framkomu

Markmið í framhaldsnámi

Við lok framhaldsnáms eiga básúnunemendur að hafa náð eftirfarandi markmiðum:

Nemandi

  • beiti líkamanum á eðlilegan hátt þegar leikið er á hljóðfærið
  • beiti hröðum og nákvæmum sleðahreyfingum
  • hafi náð mjög góðum tökum á eðlilegri og djúpri öndun
  • hafi tileinkað sér eðlilega og vel þjálfaða munnsetningu
  • hafi náð tökum á öruggri og þroskaðri tónmyndun á öllu tónsviðinu frá kontra G til c''
  • hafi náð góðu úthaldi
  • hafi náð mjög góðum tökum á inntónun
  • geti stillt hljóðfærið við annað hljóðfæri
  • leiki hreint og geti aðlagað inntónun í samleik
  • hafi náð góðum tökum á vibrato og noti það smekklega
  • ráði yfir víðu styrkleikasviði hvar sem er á tónsviði hljóðfærisins
  • ráði yfir mjög góðri tungutækni bæði hvað varðar hraða og fjölbreytni í túlkun
  • ráði yfir leikni í notkun tvöfaldrar og þrefaldrar tungu
  • geti leikið varabindingar á sama gripi á öllu tónsviðinu, þ.e. náttúrutónabindingar
  • geti leikið varatrillur eftir þörfum
  • hafi öðlast leikni í að beita sem flestum aukalegum
  • geti leikið trillur og skrautnótur í samræmi við tónbókmenntir þessa námsáfanga

Nemandi

  • hafi öðlast mjög gott hrynskyn
  • geti lesið og leikið án undirbúnings verkefni sambærileg þeim sem fengist var við á miðprófi
  • hafi gott vald á nótnalestri í tenórlykli
    hafi hlotið nokkra þjálfun í nótnalestri í altlykli
  • hafi fengið reglulega þjálfun í að leika utanbókar
    hafi hlotið þjálfun í ýmiss konar samleik, bæði í stærri og minni hópum
  • hafi kynnst a.m.k. einum öðrum meðlim básúnufjölskyldunnar sé þess kostur
  • hafi farið yfir viðunandi fjölda verkefna
  • hafi fengist við fjölbreytt úrval verkefna
    hafi þjálfast reglulega í leik tónstiga og hljóma samkvæmt þessari námskrá
  • hafi undirbúið prófverkefni til flutnings á framhaldsprófi samkvæmt þessari námskrá
  • hafi undirbúið efnisskrá til flutnings á tónleikum samkvæmt almennum hluta aðalnámskrár, bls. 41-42

Nemandi sýni með ótvíræðum hætti

  • tilfinningu fyrir túlkun og hendingamótun
  • margvísleg blæbrigði og andstæður
  • þekkingu og skilning á stíl
  • tilfinningu fyrir samleik
  • öruggan og sannfærandi leik
  • persónulega tjáningu
  • viðeigandi framkomu
 
  Einsöngur
Gítar
Harpa
Suzuki-nám
Fiðla
Víóla
Selló
Kontrabassi
Píanó
Orgel
Harmonika
Trompet/Kornett
Básúna
Barítónhorn
Túba
Blokkflauta
Þverflauta
Óbó
Klarínetta
Saxófónn
Tölvutónlist
Tónfræðagreinar
Tónlistarsérkennsla

 

Tónlistarskóli Kópavogs | Tónlistarhúsi Kópavogs | Hamraborg 6 | 200 Kópavogur | Sími 578 5700 | tonlistarskoli@tonlistarskoli.is